Reykjavíkurmærin segir frá

Velkomin á heimasvæði Reykjavíkurmærinnar

29.01.2010 14:11:15 / olofkr

Óléttublogg

Í júlí í fyrra fór að bera á fyrstu einkennum óléttu hjá mér og í framhaldinu komu fleiri klassísk einkenni (t.d. sofnaði ég iðulega ef ég lagðist út af, sama á hvaða tíma dagsins). Þungun var síðan staðfest á 6. eða 7 viku. Ef einhver er síðan að velta því fyrir sér hvort þungun hafi komið á óvart, þá var svo ekki. Ólíkt fyrra skiptinu var um skipulagðan gjörning að ræða ;) Á fyrstu vikunum situr maður á fréttunum eins og ormur á gulli og hræðist að einhver komist að hinu sanna um ástand manns. En ég þurfti nú aldeilis ekki að óttast það! Þegar ég var langt komin fram yfir þann tíma sem þykir óhætt að byrja að segja frá, var ég enn að koma fólki á óvart með fréttum um að ég væri eigi kona einsömul. Mér var farið að þykja augljóst að ég hefði stækkað nokkuð um miðbikið en greinilega var það ímyndun í mér. Það var helst fólk sem stendur manni næst sem var farið að gruna eitthvað.

Fyrstu vikurnar gerði þreyta þó nokkuð vart við sig, en morgunógleði var sem betur fer væg. Ég þurfti bara að passa mig að borða reglulega en hafði ekki lyst á að borða hvað sem var. Á 12. viku skunduðum við skötuhjú í sónar þar sem staðfest var að einungis væri um eitt fóstur að ræða og allir fjórir útlimir á sínum stað. Þrátt fyrir augljós einkenni óléttu og tvö strik á hvítu priki, fannst mér þetta ekki orðið raunverulegt fyrr en ég sá krílið sprikla á skjánum (merkilegt nokk tók ég eftir því að gæðin í sónarnum hefðu aukist frá því fyrir 5 árum). Settur dagur samkvæmt sónar er 12. apríl.

Annar þriðjungur meðgöngunnar var ljúfur og ég var mun orkumeiri en á þeim fyrsta. Hreyfingar fóru að gera vart sig sem er í senn dásamlegt og stórundarlegt. Ég meina, það er eitthvað að vaxa inni í þér! Hversu skringilegt er það? Annar sónar á 20. viku sýndi að allt væri í góðu lagi, heili til staðar ásamt öðrum mikilvægum líffærum og hjarta með fjórum hólfum. Ótrúleg smáatriði sem sjást í þessum undratækjum. Sónar sýndi að annar strákur er á leiðinni.

Nú er farið að síga á síðasta hluta meðgöngunnar og ýmsar aukaverkanir farnar að gera vart við sig. Vægir samdráttarverkir, aukin þreyta, verkir í liðum öðru hvoru og spörk í allar áttir (sérstaklega óþægilegt þegar manni er mál að pissa og það kemur eitt gott spark í blöðruna!). Ég næ þó að sofa vel á nóttunni og síðdegislúrar eru æði :) Jón Árni er sem betur fer ofsalega duglegur í heimilisstörfunum þannig að ég get aðeins hvílt mig á þeim. Ég reyni frekar að sinna KDJ enda verða töluverð viðbrigði fyrir hann að eiga ekki mömmu sína aleinn þegar krílið mætir á svæðið.

Annars lítur út fyrir heilbrigða meðgöngu í þetta skiptið og blóðþrýstingur hefur haldið sig innan marka. Járnbirgðir og blóðbúskapur eru einnig í góðu lagi, það hefur lítið borið á bjúg og ég þyngist eðlilega. Kannski fæ ég að bíða óþreyjufull eftir krílinu heima hjá mér og takast á við hríðir og fæðingu án þess að vera rúmföst og tengd við milljón og eina græju. Auðvitað skiptir allra mesta máli að barnið sé heilbrigt en ef ég fæ eðlilega meðgöngu og fæðingu líka, er það bara bónus!

Framundan er að fara í meðgöngujóga (til læra góða öndun og treysta á eigin líkama) og ég þarf líklega að minnka eitthvað við mig vinnu um miðjan febrúar og hætta um miðjan mars. Svo er nauðsynlegt að slaka á, hitta góða vini og borða hollan mat. Eftir nokkrar vikur má svo fara að huga að því að finna barnarúmið og þvo barnaföt í minnstu stærð. Ég ætla líka að leyfa mér að kaupa glæný heimferðarföt fyrir krílið þegar nær dregur.  


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.01.2010 17:58:50 / olofkr

Heimspekilegum vangaveltum hjá 4 ára getur verið erfitt að svara

Kristján Dagur hefur verið að velta fyrir sér ýmsum hlutum undanfarið og margar spurningar sem hafa vaknað. Eftirfarandi spurningar eru þar á meðal. Hvernig á maður eiginlega að svara þessu?

- hvað er það elsta sem maður getur orðið? Svar: 115 ára. Af hverju getur maður bara orðið 115 ára?
- af hverju eru svartir blettir á bakinu á maríuhænum?
- af hverju geta árstíðirnar ekki bara verið inni svo við getum búið á götunni?

Hjálp óskast!


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.01.2010 10:20:17 / olofkr

Nýtt ár

Það hlýtur að hafa verið meira en nóg að gera hjá mér í desember og hátíðirnar hafa verið alveg óbloggaðar! Fyrir óhuggandi lesendur eru góð tíðindi, annáll 2009 er í vinnslu og kemur fyrir augu þeirra á næstu dögum.

Annars er allt gott að frétta, nýja íbúðin að komast í gott stand, nóg að gera í vinnunni og þeir feðgar hressir að vanda. Meira seinna :)

» 3 hafa sagt sína skoðun

28.11.2009 08:58:37 / olofkr

Jólafílingur

Nú styttist aldeilis í jólin og erfitt að sjá hvor er spenntari, ég eða afkvæmið :) Plan helgarinnar er jólastúss af ýmsum toga, m.a. kaupa jólagjafir, skreyta aðventukrans, hengja upp jólaljós og baka piparkökur með Kristjáni. Aldrei þessu vant er ég komin langt á veg með jólagjafir og stefna að því að klára þær í dag. Síðan má ekki gleyma öllum afmælisbörnunum. Lítur út fyrir skemmtilega daga á næstunni: jólahlaðborð, jólaleiksýning, jólaföndur og ég veit ekki hvað og hvað! Yfir hátíðirnar sjálfar verður líka feykimikið stuð, hvert jólaboðið á fætur öðru og amk eitt stórafmæli. Ég veit hins vegar ekki hvað ég á að gera af mér á afmælisdaginn, minn mig langar voða mikið að bjóða fólki í heimsókn og er að hugsa um að gera það bara. Fólk er svo skemmtilegt og ég á svo góða vini :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.11.2009 09:15:21 / olofkr

Bara ef lífið væri svona einfalt ...

"My male roomate and I mixed up our nicotine and testosterone patches. He got cranky and hungry. I got a raise and a corner office."

- Karen Ripley

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.11.2009 10:00:02 / olofkr

Skafi skafi skafi

Eins og fleiri þennan morguninn, þurfti ég að skafa af bílnum áður en lagt var af stað til vinnu. Í gærkvöldi hafði rignt og rigningin svo frosið á bílnum yfir nóttina. Ég hamaðist því við að skafa þetta af með litlu plastsköfunni klukkan rúmlega átta í morgun. Þetta tók dágóðan tíma og ég mætti 10 mín. of seint í vinnuna. Aldrei þessu vant fannst mér þetta ekkert ógurlega leiðinlegt en samt vaknar allt sú hugmynd hjá mér á stundum sem þessum, að hundskast frekar í vinnunni með strætó eða gangandi!


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.11.2009 10:13:44 / olofkr

Vakning

Það er gaman að fylgjast með þeirri vakningu sem hefur orðið í þjóðfélaginu eftir hrunið. Sífelldar fréttir af undirskriftarlistum, mótmælum, borgarafundum, þjóðfundum og facebook hópum um hin ýmsu málefni. Mín tilfinning er sú að við sem samfélag hafi sofnað á verðinum og látið ýmislegt yfir okkur ganga á góðæristímum sem ekki var nógu gott. Ég tek sem dæmi leikskólamál en þar hefur orðið mikil vakning meðal foreldra um að hafa áhrif. Í góðærinu var mannekla viðvarandi vandamál og þrýstingur foreldra á hærra laun fyrir leikskólakennara var skammarlega lítill. Ætli fólk hafi ekki núna loksins tíma til að láta til sín taka! Enda er ómögulegt að niðurskurður vegna hrunsins bitni á þeim sem eiga að byggja þetta samfélag í framtíðinni. Það er mikilvægt að átta sig á því hvaða áhrif samdráttur í menntakerfinu getur haft til frambúðar. Ég sé fyrir mér að félagsleg vandamál aukist (velferðakerfið er ekki ókeypis...) og dragi úr nýsköpun og frumkvæði. Við þurfum hins vegar á vel menntuðu fólki til að draga okkur upp úr kreppunni og koma í veg fyrir að nokkuð líkt hruninu 2008 geti endurtekið sig.

Nú er bara að vona að þessi vakning verði viðvarandi og hrunið hafi kennt okkur nauðsyn þess að við stöndum vörð um okkar eigin réttindi.

Hér í lokin er ósmekklegasti brandari vikunnar:

"Til þess að komast út úr kreppunni þurfum við þrefalt siðgæði, tvöfalt bókhald og einfaldan endurskoðanda!" .... ha ha ha? Er þetta ekki frekar lýsing á ástæðum þess að við komumst í þessa klípu í upphafi?!


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.11.2009 17:08:08 / olofkr

Jafnrétti í reynd?

Ég hef unnið margvísleg störf sem krefjast þjónustulundar og mikilla samskipta við viðskiptavini. Oft eru þessi störf dæmigerð skrifstofustörf og mikið til mönnuð af konum. Ég verð að segja, að samkvæmt minni reynslu í þessum störfum, þá er jafnrétti ekki enn að fullu komið í reynd á landinu okkar góða. Með jafnrétti á ég við að komið sé fram við einstaklinga jafnt, hvort sem þeir eru karlar eða konur.
Stundum getur fólk lent í agalega leiðinlegu eða vitgrönnu starfsfólki og slíkt er ekki alltaf auðvelt að höndla. Flestir reyna samt sem áður að koma fram af háttvísi og kurteisi á meðan afgreiðslu stendur. Leiðindi og heimska, eða kunnáttuleysi og slæm íslenska (eiginleikar sem fara iðulega sérstaklega mikið í taugarnar á viðskiptavinum), hafa hins vegar ekkert með kyn eða aldur að gera. Þrátt fyrir það, finnst mér viðmót sem karlar sýna gagnvart mér sem starfsmanni, því miður oft einkennast af karlrembu og vissu um að ég sé óhæf til nokkurra verka, öll mistök megi kenna kynferði mínu um og engar líkur séu á að ég sé með mesta reynslu, kunnáttu eða vit á nokkrum hlut, af öllum starfsmönnum. Sérstaklega finnst mér þetta einkennandi þegar eitthvað fer úrskeiðis eða reglur koma í veg fyrir að viðkomandi karlkyns viðskiptavinur fái það sem hann er að biðja um.
Mig grunar reyndar að aldur spili líka hlutverk. Ungar konur eru allra neðst í virðingastiga karlrembanna. Málið er að karlmenn á sama aldri teljast líklegri til að kunna best til verka. Konur geta líka gerst sekar um aldursfordóma og treysta ekki ungum kynsystrum sínum til að kunna almennilega til verka. Kannski er þetta hræðsla?
Gleymum ekki okkar ábyrgð. Komum fram við alla af kurteisi og ölum börnin okkar þannig upp að þau virði fólk sem einstaklinga og manneskjur, en sjái ekki einungis kynferði, aldur, húðlit o.s.frv.

Hefur þú orðið vör við ólíka framkomu í þinn garð en annarra karlkyns starfsmanna?

» 5 hafa sagt sína skoðun

25.10.2009 09:43:27 / olofkr

Veikindahrina

Ég var ekki fyrr búin að blogga um að ég vildi ekkert með svínaflensuna gera, að ég lagðist veik! Virðist hafa verið flensan mikla og í kjölfarið fékk ég svo kinnholusýkingu, jibbí! Nú er mér sem betur fer farið að batna og ég svaf heila nótt án þess að vakna til þess að hósta. Nú erum við KD vöknuð á sunnudagsmorgni, og ég reyni að finna eitthvað líf á internetinu á meðan hann horfir á morgunsjónvarpið. Á eftir er svo afmælis-brunch hjá Ingibjörgu og KD er svo boðinn í rosa 5 ára afmælisveislu í Veröldinni okkar í Smáralind seinni partinn. Ég vona að þetta verði ekki standardinn fyrir 5 ára afmælin á leikskólanum ... ég var meira að hugsa pulsupartí með blöðrum og ís!

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.10.2009 10:49:07 / olofkr

H1N1 - enga svínaflensu hér takk!

Þegar ég gekk inn á leikskólann í morgun með Kristjáni, var óvenju hljótt og rólegt ... enda kom í ljós að töluvert hefur verið um veikindi á meðal barnanna. Í vinnunni eru líka þó nokkrir heima vegna pestar eða til að sitja yfir veikum börnum. Jújú, H1N1 flensan hefur hafið innreið sína enn á ný, faraldur nr. 2! Kristján Dagur er nú alveg með það á hreinu að einungis svín geti fengið svínaflensu, þannig heima hjá okkur heitir þetta H1N1 flensa. Ég held að það sé frekar spurning um hvenær heldur en hvort H1N1 flensan hefur innreið sína á heimilið. Þangað til er það bara lýsið sem blívar!


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.10.2009 19:17:48 / olofkr

Simple but good

Margt sem flýgur gegnum huga manns þegar allir keppast við að rifja upp fyrstu daga hrunsins fyrir ári síðan. Ég held að ég geti með sanni sagt að ég og mín fjölskylda hafi það ágætt. Við erum  ekki með íþyngjandi lán (væri samt gaman að geta sett LÍN lánin í eignarhaldsfélag og látið það svo fara á hausinn), ég er með vinnu, Kristján Dagur unir sér vel á leikskólanum og Jón Árni er á síðustu metrunum í MA-náminu. Við erum öll heilsuhraust, með þak yfir höfuðið og getum gert nokkurn veginn það sem okkur dettur í hug. Ég fór meira að segja til útlanda um daginn! Það er ótrúlegt að heyra sögur úr góðærinu þar sem borðað var gullskreytt risotto, menn þeyttust um allt á snekkjum og einkaþotum og keyptu fyrirtæki hægri vinstri fyrir pening sem á endanum var ekki til ... maður gæti nú alveg orðið vitlaus á að velta fyrir sér hvernig þetta gat allt saman gerst og hvernig allt þetta dæmi átti að ganga upp? Nú er komið á daginn að allt þetta ríkidæmi var bara skýjaborgir, lán á lán ofan. Talandi um að byggja á sandi ...

Hvað er svo framundan? Bara lifa lífinu. Árshátíð í vinnunni, íþróttaskóli með drengnum, hitta vini og fjölskyldu ... og svo verð ég að fara að sjá Karlar sem hata konur. Simple but good :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.07.2009 15:28:18 / olofkr

Einmana?

Við Kristján Dagur erum búin að vera í fríi í tæpar tvær vikur, og skortur á leikfélögum er farinn að segja til sín. Kristján bjó sér til hvorki meira né minna en 10 útgáfur af sjálfum sér, sem hann skiptist á að leika. Hver útgáfa hefur sér nafn og hljóð, en einungis útgáfa nr. 1 (Kristján sjálfur) kann að tala venjulega. Sem stendur er hann úti á svölum, ásamt "félögum sínum", og syngur ofurhetjusönginn. Við þurfum greinilega að skipuleggja einhvern hitting eftir helgina.

» 4 hafa sagt sína skoðun

21.07.2009 10:12:19 / olofkr

Hið ótrúlega hefur gerst!

Nýjar myndir hafa verið settar inn á síðuna hans Kristjáns Dags. Elstu myndirnar eru frá seinasta sumri og þær nýjustu frá aldeilis frábærri ferð í Bíldsey í júní sl. Margt hefur gerst á þessum mánuðum og margar flottar myndir af skemmtilegum viðburðum sem og hversdagslegum atriðum.
Síðuna hans Kristjáns má skoða hér. Lykilorðið er sem fyrr gælunafn systur minnar.




» 1 hafa sagt sína skoðun

21.07.2009 08:34:50 / olofkr

Fyrstu dagar sumarfrísins

Lítur út fyrir að ég sé búin að gleyma því hvernig á að slaka á og taka daginn rólega! Síðan við Kristján byrjuðum í fríi erum við búin að kíkja í húsdýragarðinn, Nauthólsvík, ótal heimsóknir, versla í IKEA og fara í hjólatúra. Að auki er ég búin að fara tvisvar út að hlaupa og KD búin að leika við vini sína úti í garði. (Við erum búin að vera þrjá daga í fríi...). Í dag er stefnan sett á sund, spil og föndur. Helst viljum við bæta við svo sem eins og einni heimsókn, annað hvort bjóða einhverjum hingað eða líta við hjá einhverjum. Vonandi rætist eitthvað úr því. Veðrið er að sjálfsögðu búið að vera yndislegt og við njótum þess út í ystu æsar! En jæja, best að fara að finna til sunddótið :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.07.2009 22:01:24 / olofkr

Á maður að skella sér aftur?

Að loknum 10 km í maraþoni, ágúst 2008. Spurning um að skella sér aftur?




» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 46
Höfundur
Ólöf Kristjánsdóttir, viðskiptafræðingur og MA í alþjóðasamskiptum. Auk þess mamma, sambýliskona, systir, vinkona og allt hitt
Dagatal
febrúar - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28
FyrriNæsti