30.09.2005 14:06:01 / olofkr
Við Jón Árni erum á leið í Stykkishólm. Ég hlakka mikið til, það
verður fínt að komast aðeins út úr bænum. Ástæðan fyrir því að við
erum að fara er að Jón Árni ætlar á SUS-þing. Og kæru
vinstri-sinnuðu lesendur: ekki örvænta, Jón Árni er ekki genginn í
Sjálfstæðisflokkinn og orðinn það sem hann kallar sjálfur
íhaldspungur. Hann er að fara til þess að styðja vin sinn sem er
formaður Heimdallar. Og við Kristján fáum að fljóta með af því að
ég heimtaði það

Við gistum hjá afa hans Jóns Árna og ég er viss
um að það verður mjög gaman.
»
28.09.2005 21:12:18 / olofkr
Mmmmm, fór í gær og keypti föt. Mér líður svo vel

Það þarf svo
lítið til þess að skemmta mér. Keypti mér tvær hlýjar peysur og
þrjá síðerma boli. Svo gaf Jón Árni mér gallabuxur um daginn svo
fataskápurinn lítur bara ágætlega út. Nú vantar mig bara góða skó
og kannski einhvern hlýjan jakka. Og mig langar í einhverja svona
flotta hippamussu. Þær eru svo flottar svona á haustin. Helst
langar mig í dökkbrúna, ég á svakalega lítið af brúnum fötum. Mér
finnst líka svona föt sem mann vantar ekki endilega miklu
skemmtilegri en föt sem mann bráðvantar. Og já, veturinn alveg á
næsta leyti. Veit ekki alveg hvað mér finnst um það. Að hluta til
sé ég eftir sumrinu en að hluta til hlakka ég óskaplega mikið til
jóla. Ég veit það er ennþá september en ég get ekki að því gert, ég
er algjört jólabarn! Ég er að hugsa um að föndra jólakort til þess
að senda og ég strax farin að huga að því hvernig við getum skreytt
íbúðina. Spurði Jón Árna meira að segja að því um daginn hvort við
ætluðum ekki örugglega að hafa jólatré. Svo ætla ég að vera
svakalega myndarleg og baka eitthvað. Þetta verður stórskrítið að
halda í fyrsta skipti jól annars staðar en heima hjá mömmu og
pabba. Við förum nú samt örugglega í mat til foreldra okkar á
aðfangadag og það verður áreiðanlega nóg af jólaboðum til þess að
fara í en samt...við eigum eftir að vakna heima hjá okkur á
jóladagsmorgun og klæða okkur í jólafötin heima hjá okkur og þetta
verður allt öðruvísi. Ég veit samt fyrir víst að þessi jól verða
æðisleg! Fyrstu jólin hans Kristjáns, fyrstu jólin okkar Jóns Árna
saman og Súper-Sissa verður heima! Jibbí!
»
26.09.2005 12:22:52 / olofkr
Það eru ekki sérlega margir flottir litir í boði á þessari
heimasíðu. Ég var búin að velja dökkgrátt vegna þess að mér fannst
það skásti liturinn (fyrir utan dökkgrænt en ég vildi ekki vera
alveg eins og Hrefna). Síðan var ég að spá í svona brúnum og gulum,
en sá litur minnir mig einum of mikið á bleyjuinnihald...kannski ég
fari bara út í ljósblátt þó að gamla heimasíðan mín hafi líka verið
ljósblá. Dökkgrár er frekar þunglyndur litur eins og frændi minn
orðaði það, og síst af öllu vil ég að fólk verði dapurt af því að
lesa heimasíðuna mína. Tilgangur hennar er einmitt að fólk komist í
gott skap af því að lesa hana! Já, ég held að niðurstaðan sé
ljósblár.
»
20.09.2005 16:54:04 / olofkr
Vegna síðustu færslu varðandi lítt þekktar staðreyndir um sjálfa
mig þá vil ég skora á Hrefnu, Hildi og Sissu að skrifa a.m.k. fimm
staðreyndir um sjálfa sig á bloggsíðurnar sínar, helst lítt þekktar
og skemmtilegar

Þetta er nefnilega leikur....svona eins og
keðjubréf nema bara skemmtilegra!
»
19.09.2005 17:07:23 / olofkr
1.Ég elska sakamálasögur, í formi kvikmynda, sjónvarpsþátta eða
bóka skiptir ekki máli.
2.Mér finnst óendanlega gaman að elda og geri það oft mér til
skemmtunar ef mér leiðist. Ég nota alltaf hvítlauk þegar ég elda og
græt þegar ég sker lauk.
3.Pantaðar pizzur vil ég helst borða með pepperoni og sveppum en
heimatilbúnar vil ég fá með skinku og sveppum.
4.Mig langaði að verða listamaður þegar ég var lítil en komst
fljótt að því að ég hafði litla hæfileika á því sviði og sneri mér
því að öðru. Síðan þá hefur mig langað að verða tónlistarmaður,
lögfræðingur, hagfræðingur, markaðsfræðingur, hjálparstarfsmaður,
kennari og fræðimaður. Ég endaði sem viðskiptafræðingur...
5.Ég get ómögulega sofið á maganum en sofna yfirleitt á bakinu eða
annarri hvorri hliðinni.
6.Vegna mistaka við getnað eru til tvö eintök af mér. Hitt býr í
Boston.
7.Ég hef litað hárið á mér svo lengi að ég man ekki hvernig það er
á litinn.
»
15.09.2005 14:05:16 / olofkr
Back by popular demand...nýjar myndir að Kristjáni komnar á netið!
»
15.09.2005 13:39:12 / olofkr
Kristján Dagur tekur stórstígum breytingum á hverjum degi. Hann er
komið með heilmikið hár (amk miðað við hvernig það var), ein tönn
er farin að gægjast upp úr gómnum og svo fann hann upp á nýju
hljóði í fyrradag. Hann rymur svona eins og gamall kall í sí og æ
og skríkir síðan hástöfum. Síðan er hann farinn að slá dóti í borð
og henda því svo niður á gólf. Og stundum getur hann sýnt hvað hann
er stór

En bara ef Kristján afi spyr hvað hann sé stór. Já, hann
Kristján minn er sérvitur, þrjóskur og ákveðinn. Eins gott að halda
vel á spöðunum svo hann verði ekki algjör terror þegar hann
stækkar!
»
14.09.2005 12:07:30 / olofkr
Mig dreymdi hval í nótt. Ég var stödd úti á landi með fjölskyldu og
vinum þegar við sáum hval út af landi. Þetta var stór, svartur
hvalur, líklega hrefna eða hnúfubakur. Síðan synti hvalur bara í
land. Þá var hann orðinn svo lítill að maður gat haldið á honum. Og
hann gat andað á landi. Þegar hvalurinn var svona lítill var hann
bleikur á litinn og frekar ljótur. Minnti á eitthvað úr X-Files með
hvítar skögultennur og tungu eins og snákur. Síðan þurftum við að
skila hvalnum aftur í sjóinn vegna þess að það var að fjara út.
Fjaran þar sem við skiluðum hvalnum leit út eins og munnur á hval.
Frekar súrrealískur draumur. Annars fékk ég að sofa út í nótt, eða
mér finnst eins og það sé að sofa út. Kristján vaknaði nefnilega
ekki fyrr en klukkan 5 til þess að fá að drekka. Ég vaknaði hins
vegar korteri fyrr og hélt að það hlyti að vera eitthvað að fyrst
Kristján væri ekki vaknaður

Talandi um móðursýki...
»
11.09.2005 17:24:38 / olofkr
Við Jón Árni fórum á skómarkað UN Iceland og gerðum góð kaup.
Keyptum þrenn pör af skóm á samtals 1.500 kr. Geri aðrir betur. Ég
keypti mér hvíta skó með rauðu í en var reyndar að leita mér að
svörtum götuskóm. En fyrir 500 kr. þá hefði ég keypti köflótta skó!
Svo keyptum við eitt par fyrir Kristján sem hann getur reyndar ekki
notað fyrr en eftir nokkur ár. Vonandi munum við eftir því að láta
hann nota skóna

Af Kristjáni er það annars að frétta að hann er
orðinn mjög duglegur að sitja og velta sér. Næsta skref fyrir
drenginn er bara að byrja að skríða

Hann borðar líka alltaf
meira og meira á hverjum degi. Gaf honum sveskjumauk í dag og honum
fannst það bara ekkert svo vont. En hann er hins vegar í liði með
móður sinni þegar kemur að bönunum og finnst þeir viðbjóðslegir!
Svo er eitthvað að birta til í daggæslumálum, við förum á morgun að
tala við dagmömmu í Laugarneshverfinu og vonandi gengur það vel.
»
08.09.2005 14:06:09 / olofkr
Ég sá að netinu að Hildur var búin að setja inn mynd af gjöfinni
sem hún keypti handa Snædísi fyrir hönd saumaklúbbsins. Allar að
kíkja! Slóðin á heimasíðuna hennar er í tenglunum mínum.
Tilkynningu lokið.
»
06.09.2005 12:33:17 / olofkr
Veit svo sem ekki hvað ég ætla að skrifa um. En langar að skrifa
eitthvað...helst í fréttum er að Sissa er farin aftur út til
Boston. Kemur ekki heim fyrr en um jólin. Það er svo langt þangað
til!!! javascript:editor.insertHTML('

'); Þá verður Kristján
farin að skríða bara! Annars var voða gaman um helgina. Ingibjörg
og Hörður komu í mat og við spiluðum Trivial Persuit með spurningum
úr Friends spilinu. Ótrúlega gaman og við Ingibjörg létum ljós
okkar skína með kunnáttu okkar um Vinina. Síðan var afmæli hjá Erlu
á sunnudagskvöld og þar var sko almennilegar veitingar og Erla búin
að skreyta eins og henni einni er lagið. Í dag ætlum við Jón Árni
svo að halda áfram að reyna að finna dagmömmu eða leikskóla fyrir
Kristján. Óskið okkur góðs gengis og ef þið heyrið af einhverju sem
er laust endilega látið okkur vita!
»