29.04.2008 18:13:57 / olofkr
Já, þetta var eiginlega of gott til að vera satt. Fínasta helgi, afslöppunardagur í gær og stefnan sett á allsherjar yfirhalningu í dag. En...Kristján Dagur er lasinn svo við erum bara búin að vera heima í dag. Nema ég skrapp aðeins í leikfimi. Dúdda frænka átti nefnilega vinapassa í Nordica Spa svo ég nýtti tækifærið og fór að hlaupa og horfa á sjónvarpið um leið. Nauðsynlegt að nýta svona gott tækifæri enda aðstaðan í Nordica Spa engu lík. Við Sissa fórum saman í gær að lyfta og vá! Þvílíkar harðsperrur!
Þannig að, útlit fyrir frekari afslöppunardaga á næstunni. Samfara því þarf ég að byrja á einni ritgerð og sækja um vinnur. Alltaf nóg að gera!
»
28.04.2008 07:55:51 / olofkr
Við Kristján Dagur gerðum svo mikið saman um helgina að við vorum dauðþreytt eftir daginn

Fórum í Húsdýragarðinn með Vali Kára og Hörpu, horfðum á sjónvarpið, fórum í mat til ömmu og afa, vorum úti að leika, tókum einn göngutúr, fórum í kaffi til Dúddu og Bigga, versluðum sokka og nærföt, fengum smákökur hjá Sissu, fórum í Krónuna, elduðum mat og fleira og fleira. Afskaplega gott að geta eytt góðum tíma með afkvæminu, hann hefur líka svo gott af því. Bað líka um það í morgun að fá að vera heima, allan tímann! Það eru bara kröfur!
»
25.04.2008 19:38:57 / olofkr
Nú er ekki aftur snúið. Skilaði inn meistarastykkinu kl. 10.55 í morgun. Við tók allsherjar slæpingur þar sem komu við sögu crepes, skókaup, glingur, slysó, kökur og spjall. Jón Árna tókst svo að draga mig út að hlaupa sem var reyndar ágætt þar sem ég hafði gúffað í mig ostaköku um daginn. Svo voru það bara kósýheit með Kristjáni mínum og matargerð. Nú er Kristján kominn upp í rúm, Jón Árni farinn á lesstofuna að læra og mín bíður dásemdar letikvöld með herra sjónvarpi. Veit ekki alveg hvað ég hef beðið lengi eftir þessu kvöldi en það eru í það minnsta nokkrar vikur.
Eigið góða helgi! Ég veit að mín verður það
»
24.04.2008 17:10:59 / olofkr
Við Kristján erum búin að hafa það ósköp gott í dag. Tókum því rólega í morgun og horfðum svolítið á sjónvarpið áður en við fórum á opið hús í leikskólanum. Þar fengum við veitingar sem krakkarnir höfðu gert daginn áður og skoðuðum fullt af myndum og bókum. Eftir heimsóknina drifum við okkur heim að borða og svo strax niður í Frostaskjól þar sem var sumarhátíð. Kristján hoppaði í hoppukastala, við fylgdumst með nokkrum skemmtiatriðum og heilsuðum upp á gamla kunningja. Til þess að fagna sumardeginum fyrst enn betur fórum við í ísbúð

Er til eitthvað sumarlegra en það? Að sjálfsögðu var troðið út úr dyrum í ísbúðinni en biðin var þess virði. Eftir allt þetta útstáelsi á okkur mæðginum var Kristján orðinn verulega þreyttur og pirraður og ekki annað í stöðunni en að drífa sig heim. Nú liggur Kristján sofandi í sófanum, alveg búinn. En dagurinn er hvergi nærri búinn, við eigum nefnilega eftir að fara í mat til mömmu og pabba! Best ég taki svolítið til og vekji svo drenginn til að drífa hann af stað í næsta dagskrárlið. Spurning um að vera bara heima í slökun um helgina?
Í tilefni sumarsins og þess að ég er búin með ritgerðina og má gera hvað sem er, þá setti ég inn nýjar myndir á heimasíðuna hans Kristjáns. Gleðilegt sumar!
»
23.04.2008 21:25:56 / olofkr
Þetta skrímsli liggur á kommóðunni hjá mér...

»
23.04.2008 08:52:30 / olofkr
Úff, það fer um mig skjálfti þegar ég skrifa þetta: í hádeginu ætla ég að fara með ritgerðina mína í prentun. Íííík! Fram að hádegi er loka lokayfirferð. Bara laga nokkrar innsláttarvillur og setja þetta almennilega upp. Í kvöld verður það glöð stúlka sem slakar á yfir sjónvarpinu.
»
21.04.2008 14:49:53 / olofkr
Æ, æ, Gerði þau mistök að skoða sjónvarpsdagskrána áðan...nú langar mig miklu frekar að hanga yfir sjónvarpinu í kvöld en yfir ritgerðinni. Mér til huggunar get ég glápt eins mikið á sjónvarp og mig lystir um næstu helgi. Jibbí!
»
21.04.2008 08:51:23 / olofkr
Jæja, nú styttist allverulega í lokaskil. Stefnan er að prenta á miðvikudag. Áður en ég get prentað þarf ég að fara yfir textann, laga athugasemdir frá elskulegri tengdamóður minni sem las textann yfir um helgina, skrifa formála og útdrátt og setja textann upp samkvæmt reglum skorarinnar. Sem sagt, allt að koma og ég er nokkuð sátt við lokaútkomuna
»
18.04.2008 19:31:48 / olofkr
Mér reiknast til að ég sé búin að hlaupa 13 km undanfarna viku. Tveir 2 km hlaupatúrar, einn 4 km og einn 5 km. Verður að viðurkennast að mín er bara nokkuð stolt af þessum afrekum. Í næstu viku held ég svo ótrauð áfram og bæti í km-sarpinn
»
18.04.2008 08:16:31 / olofkr
Allt að gerast....bara vika í skil. Staðan er ágæt, búin að fá komment frá leiðbeinandanum og fer yfir þau í dag og um helgina. Mamma Jóns Árna ætlar að lesa yfir málfar og stafsetningu um helgina líka. Á mánudag ætla ég að skrifa formála, útdrátt og svoleiðis. Undirbúa fyrir prentun á þriðjudag og senda jafnvel í prentun á miðvikudag. Ííííkk...allt að verða búið! Ég hélt í alvöru á tímabili að þessi dagur myndi aldrei koma.
Annars er félagslífið búið að vera sæmilega aktívt. Fór í partý á laugardag og saumaklúbb á miðvikudagskvöld. Við Hrefna erum líka ýkt duglegar að fara í leikfimi

Jámm...lífið er bara gott þessa dagana. En ef einhver ykkar veit um góða vinnu fyrir mig má sá hinn sami endilega láta mig vita!
»
15.04.2008 12:35:43 / olofkr
Ég hlakka svo mikið til að skila þessari ritgerði minni!!! Orðin frekar lúin eftir stanslausa törn seinustu vikur. En, nú er bara lokaspretturinn eftir og föstudag eftir viku verður partý!!
»
14.04.2008 11:14:03 / olofkr
Jáhá...barasta búið eftir 11 daga. Ótrúlegt en satt þá kemur það mér á óvart. Finnst einhvern veginn eins og seinustu mánuðir hafi liðið rosalega hratt. En mér tókst að skila lokadrögum í gærkvöldi. Nú er ég að fara yfir heimildaskránna og svo ætla ég að lesa mér til um einn punkt sem ég vil endilega bæta í ritgerðina. Bara einn punkt samt, svo er ég hætt! Meistaraverkið stendur í 99 bls. og 30.304 orðum með heimildaskrá. Og nei, ég veit ekki ennþá hvernig á að fara að því að skrifa 99 blaðsíðna verkefni!
»
12.04.2008 17:25:02 / olofkr
Barf! Nenni ekki að lesa yfir þennan blessaða texta! Þarf að finna nokkrar heimildir fyrir hlutum sem ég hef slegið fram í einhverju kæruleysi. Frekar þreytandi og tímafrek vinna. Svona er manni refsað fyrir óvandvirkni. En þetta er nú allt að koma. Mjakast allt saman eins og venjulega. Eftir minna en tvær vikur er ég frjáls

Ég er búin að ákveða að verðlauna mig með því að fara í smá beauty-treatment. Fara í klippingu, litun og plokkun, versla föt og fleira skemmtilegt. Þriðjudagur 29. apríl hefur verið tekinn frá af þessu tilefni.
»
10.04.2008 13:11:32 / olofkr
Lokaritgerðin mjakast eins og venjulega. Sit nú og skrifa lokaorðin. Þegar þau eru klár tekur við yfirferð og smá viðbætur áður en ég skila lokadrögum á sunnudaginn. Fattaði að ég hafði ekki verið jafndugleg í yfirferðinni og mig minnti...á nefnilega ennþá eftir smá vinnu í 4. kafla, úps! En það reddast fyrir sunnudag, ekkert mál. Í næstu viku tekur við yfirferð á athugasemdum frá leiðbeinandanum og lagfæra þær. Föstudag eftir viku fer ritgerðin svo í yfirlestur á málfari. Svo bara skila 25. apríl....spurning um að hafa partý? Hvað segið þið, mundi einhver mæta?
Annars er það helst í fréttum að ég sótti um fimm vinnur í gær. Sjáum svo til hvort eitthvað kemur út úr því. Skráði mig líka hjá Capacent. Vinnuleit er því formlega hafin. Vonandi fæ ég bestu vinnu í heimi!
»
08.04.2008 12:59:21 / olofkr
Maður verður nú að finna sér eitthvað að gera í pásunum...ekki satt?
Ég er:

Takið prófið á http://bluebuddies.com/smurf_fun/smurf_personality_test/smurf_personality_test.htm
»
Síður:
1 2