26.05.2008 10:50:00 / olofkr
Ha! Þarna náði ég þér

Nei, ég er ekki ólétt. EN systir mín kær ætlar að fjölga mannkyninu því hún og Stulli eiga von á litlum erfingja í september. Þar með fjölgar í stórfjölskyldunni og Kristján Dagur eignast lítið frændsystkini. Mér finnst mjög gaman að upplifa þetta ferli í gegnum Sissu þó ég hafi farið í gegnum það sjálf og hlakka óstjórnlega mikið til að fá litla frænku eða frænda. Til hamingju Sissa og Stulli!!!
»
26.05.2008 10:42:01 / olofkr
Svo margt hefur gerst undanfarna viku að ég veit ekki hvar ég á að byrja. Er líka hrædd um að gleyma einhverju en vonandi man ég eftir þessu helsta. Kláraði að kenna 3. bekk á föstudaginn og það verður að segjast að þetta var mjög góð og sérstæð reynsla. Allir sem eiga börn ættu að prófa að kenna í eina viku. Á fimmtudag hélt ég stórgóða kynningu á verkefninu mínu ásamt níu öðrum nemendum í alþjóðasamskiptum og það var haldin smá kokkteilmóttaka á eftir. Á föstudagskvöld fór ég í rosalegt loka-annar-partý þar sem dansinn dunaði fram eftir nóttu og vínið flæddi um alla ganga. Telst núna búin með meistaranám í alþjóðasamskiptum en finnst samt eins og ég hafi byrjað í seinustu viku og eigi allt eftir! Þetta er búin að vera ólýsanlega skemmtilegur tími og ég hef kynnst mörgu góðu fólki sem ég næ vonandi að halda tengslum við um ókomin ár. Ég er líka orðin sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum og ætla að vinna með innflytjendum. Er reyndar ekki byrjuð á fullu enda á eftir að para mig saman við mentee í verkefninu (ef þú vilt frekari skýringu skaltu bara smella þér í heimsókn). Ræðunámskeið gengur vel og er ca. hálfnað. Ég þarf hins vegar að taka mig á í vinahittingum....alltof langt síðan ég hef hitta marga af vinum mínum. Sorrý!! Þetta stendur allt til bóta. Við fjölskyldan horfðum saman á Eurovision á laugardag og höfðum gaman af. Kristjáni fannst íslenska lagið skemmtilegast en fílaði annars öll danslög. Helst að honum þætti ballöðurnar leiðinlegar. Vorum mátulega sátt við úrslitin en hefðum gjarnan viljað sjá íslenska framlagið komast lengra. Já, ætli þetta sé ekki það helsta. Er í "fríi" þessa vikuna en hef samt nóg að gera. Sækja um vinnur, fara á ræðunámskeið, fara í leikfimi, sækja um FS styrk og veit ég ekki hvað og hvað! Þangað til næst, hafið það gott.
Ólöf OUT
»
21.05.2008 21:20:16 / olofkr
Jájá, held bara að þetta sé allt að koma. Kennslan gengur vel, búin að reyna ýmislegt með bekknum mínum á þessum þremur dögum. Vonandi hafa þau samt lært eitthvað. Tveir dagar í viðbót og svo tekur við allsherjar leti! Tja, og þó...líklegast ekki miðað við hvað ég hef verið dugleg við að finna mér verkefni undanfarna daga

Tókst líka að skila seinasta verkefninu mínu í alþjóðasamskiptum, frábærri ritgerð um Bandaríkin og þróunarsamvinnu. Jibbí! Annars var ég svo heppin að vinna bók í leik hjá Forlaginu. Takk Guðrún Helga fyrir ábendinguna, var næstum því búið að fara fram hjá mér! Fer og sæki vinninginn í næstu viku. Þarf líka nauðsynlega að panta mér tíma í klippingu. Og undirbúa útskriftarveislu! Má ekki gleyma aðalatriðinu....hehe
»
18.05.2008 21:40:14 / olofkr
Seinustu þrjár færslur hafa verið um sama efni...án þess að ég gerði mér grein fyrir því. Ég er búin að vera svolítið utan við mig undanfarna daga en þetta er allt að koma. Er að klára eitt verkefni í þessum skrifuðu orðum og ég hlakka mjög til næsta verkefni sem er að kenna í 3. bekk. Það hefur lengi blundað í mér lítill kennari svo það verður spennandi að spreyta sig á því. Byrja á morgun og fæ að kenna í heila viku! Alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt. Læt ykkur vita hvernig gengur
»
16.05.2008 10:20:54 / olofkr
Þetta er ég að dunda við þessa dagana:
- Skrifa ritgerð um Bandaríkin og þróunarsamvinnu
- Taka þátt í ræðunámskeiði
- Undirbúa þátttöku í sjálfboðastarfi Rauða krossins
- Kenna í Rimaskóla, 3. bekk
- Sækja um vinnur
- Undirbúa styrk um lokaverkefnastyrk FS
- Skipuleggja lokapartý nemendafélagsins
- Kynna lokaverkefnið mitt á málstofu 22. maí
- Huga að vorhreingerningu
- Hefja undirbúning fyrir 10 km hlaup
- Fara í sveitaferð með leikskólanum
- Reyna að vera dugleg að hitta vini mína
...gengur sem sagt ekki mjög vel að gera ekki neitt...lítur út fyrir að það verði nóg að gera hjá mér fram í byrjun júní.
»
14.05.2008 10:02:34 / olofkr
Ég held mig langi ekki að klára skólann...ég er í það minnsta ennþá að reyna að hamra saman einni lítilli ritgerð og það tekur óratíma. Mér finnst svo ótrúlegt að námið sé að verða búið, ég sem var að byrja!! Kannski hluti af ástæðunni sé að ég er ekki að fara að gera neitt annað að loknu námi. Enn sem komið, lítur út fyrir að ég verði atvinnulaus í sumar. Svo er ég reyndar búin að vera hálflasin í tvær vikur, tek þátt í ræðunámskeiði, skráði mig sem sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum og reyni að vera skemmtileg mamma. Þannig það er kannski ekkert skrítið að mér gangi illa að klára þessa ritgerð. Ég held að eftir þessa ritgerð sé kominn tími á smá frí. Frí frá skólanum, frá veikindum, frá mömmuskyldum og bara slaka á. Láta mér leiðast í nokkra daga. Jámm, held að það sé gott plan!
»
09.05.2008 08:42:37 / olofkr
Hvað á ég að gera af mér þegar ég er búin með skólann? Hingað til hefur atvinnuleit ekki gengið sérlega vel. Ef einhver heyrir af einhverju, þá má sá hinn sami endilega hafa samband. Þessa dagana er ég að skrifa eina ritgerð og skráði mig á ræðunámskeið. Svo ætla ég að taka þátt í sjálfboðaliðastarfi Rauða krossins og kannski skrifa grein upp úr meistararitgerðinni í sumar. Ég finn mér alveg eitthvað að gera en helst vil ég fá vinnu. Sendið út jákvæða strauma og hugsið til mín!
»
06.05.2008 11:20:07 / olofkr
Tannréttingarlæknirinn minn var svo góður að setja teina á tvær tennur fyrir mig í morgun. Nú skarta ég forláta blingi á tveimur jöxlum. Þetta var svolítið eins og að verða unglingur aftur

Rifja upp þá tíma sem ég var með teina á öllum. Þá er hafið ferlið sem mun fela í sér að fjarlægja eina tönn, færa aðra og bæta svo við einni gervitönn. Í lok ferlisins ætti ég að vera með gott sett af jöxlum í neðri góm og enga barnatönn! Jibbí, loksins kemst ég í fullorðinna manna tölu.
»
04.05.2008 19:03:24 / olofkr
Sem betur fer var ég bara veik í einn dag og er batnað núna. Virðist hafa hjálpað að horfa á nokkra þætti af Pride & Prejudice

Kristján Dagur er hins vegar ennþá lasinn en á batavegi. Vonandi getur hann farið í leikskólann á morgun eða þriðjudag. Ég þarf að komast af stað í ritgerðaskrifum og vinnuleit. Auk þess er alveg hundleiðinlegt að hanga heima alla daga!
»
01.05.2008 12:22:04 / olofkr
Ég er orðin lasin líka...í það minnsta hálflasin. Ég get alveg gert ýmislegt en mig svimar, er með slím í nefi og hálsi, heitt og kalt til skiptis og svaf í næstum 12 tíma. Ég er í það minnsta nógu lasin til þess að senda Kristján Dag í pössun svo ég geti jafnað mig. Annað hvort hefur Kristjáni tekist að smita mig (frekar líklegt) eða ég er búin að reyna of mikið á mig (ekki góð blanda). Fór nefnilega að lyfta á mánudag, hljóp 3 km á þriðjudag og fór svo í háskólahlaupið á miðvikudag. Ég held að líkaminn hafi hreinlega gefist upp enda töluvert langt síðan ég hef hreyft mig svona mikið á þrem dögum. En...ég varð amk þriðja í 3 km hlaupinu, mér til huggunar. Hrefna skaust fyrst í mark. Vúhú, rosaduglegar!
»